„Klara verður að fara - því þó að nýtt fólk komi inn þá mun Klara ábyggilega bara setja hlutina áfram í þessi títt nefndu FERLI.“
Þetta segir í yfirlýsingu sem barst frá forvarnarhópi Bleika fílsins og Öfgum vegna KSÍ-skandalsins svokallaða. Guðni Bergsson, formaður sambandsins, sagði af sér í fyrradag og þá tók stjórn KSÍ ákvörðun um að segja af sér í gærkvöldi. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri sambandsins, ætlar hins vegar að sitja sem fastast eins og kom skýrt fram í viðtali við hana í fréttum RÚV í gærkvöldi.
„Að gefnu tilefni vilja Öfgar og forvarnarhópurinn Bleiki fíllinn árétta að friðsælu mótmælunum verður haldið til streitu nk. fimmtudag. Ástæðan er sú að Klara þarf að fara. Mæting er kl. 17:00 fyrir utan Laugardalsvöll fimmtudaginn 2. September,“ segir í tilkynningu sem barst fjölmiðlum.
Þar segir að framferði Klöru sé óboðlegt og hún hafi fengið að skauta framhjá sannleikanum ítrekað án þess að axla ábyrgð og án þess að sjá neitt athugavert við sitt framferði.
„Hún reynir að varpa ábyrgðinni á öll önnur í kringum sig, en sér ekkert að hjá sér sjálfri. Fyrst um sinn segist Klara ekki kannast við nein kynferðisbrot en segir síðan í gærkvöldi að hún hafi fengið að vita af hópnauðguninni í sumar. Einnig viðurkennir hún að hafa vitað af ofbeldismálinu sem Kolbeinn gekkst við. Þarna kemur hún upp um sig, hún sagði ekki satt og rétt frá. Hún segist vita að ferlið er varðar hópnauðgunina hafi ekki verið nægilega gott en vissi samt ekki af neinni hópnauðgun í fyrradag. Hún fylgir málunum, sem hún setur í ferli, ekki einu sinni eftir,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá segir að Klara hafi samþykkt yfirlýsingu KSÍ þó hún hafi vitað að hún væri röng. „Með því samþykkir hún að saka Hönnu Björgu um lygar og þagga niður í henni og öllum hinum sem vöktu athygli á brotalömum innan KSÍ.“
Í yfirlýsingunni er það ítrekað Klara verði einnig að fara frá.
„Þöggunin og ofbeldismálin sem fengu að viðgangast undir hennar augum eru það alvarleg og ítrekuð að hún hlýtur að sjá það sjálf að hún er ekki starfi sínu vaxin. Það er ekki hægt að líta fram á veginn og betrumbæta með fólk innanborðs sem var hluti af og viðhélt þessari eitruðu menningu innan KSÍ. Við skorum á styrktaraðila KSÍ að halda áfram að pressa með okkur. Ástæðan er einföld - KSÍ hélt áfram að maraþonfunda og ljúga þangað til styrktaraðilar fóru að taka afstöðu. Þá fór KSÍ að hræðast peningamissi. Peningar virðast vega hærra hjá þessu félagi en raddir þolenda og kröfur samfélagsins. Rautt spjald á Klöru. Nóg er nóg.“