Söngstjarnan margverðlaunaða Guðrún Eyfjörð, best þekkt sem GDRN, opnaði sig um kjaftasögur sem hafa verið í gangi um að eitthvað sé að í samskiptum hennar og Bríetar Elfar, annarrar söngstjörnu, í hlaðvarpsþættinum Karlmennskan.
„Við Bríet erum tvær ungar stelpur og strax fann ég fyrir samfélagslegum skringilegheitum. Það er eins og fólk hugsi sé borð fullt af karlmönnum, þar er ein kona. Svo á hún að henda konunni úr sætinu til að fá sæti við borðið,“ segir GDRN.
Hún blæs á þær kjaftasögur að einhver illindi séu á milli hennar og Bríetar: „Við vorum að heyra að það væri „eitthvað beef“ á milli okkar. Uuu, nei,“ sagði hún og hló. „Fólk vill setja okkur upp á móti hvor annarri. Það á að vera keppni á milli okkar. Svona leiðindi. Þegar enginn er að setja þessa rapparastráka upp á móti hvor öðrum, svona hver er bestur?“
Þetta er svo sterkur punktur og ég féll næstum því sjálfur í þessa gildru, að spyrja hvort það væri engin togstreita á milli GDRN og Bríetar 😬🤯 pic.twitter.com/yuCPc4Wb6J
— Þorsteinn V. (@idnadarmadurinn) February 18, 2022