„Siðrofið sem að mínum dómi kemur fram með þessari „aðferðafræði“ er gott að hafa í huga núna þegar faraldurinn geisar sem aldrei fyrr og raddir sjálfskipaðra sóttvarnafræðinga verða æ hærri,“ segir Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði við Háskóla Íslands, í aðsendri grein á Kjarnanum.
Gauti fjallar þar um afhjúpandi grein sem birtist hjá þýska blaðinu Der Spiegel á dögunum um sænsku leiðina svokölluðu. Svíar fóru talsvert aðra leið en aðrar þjóðir í fyrstu bylgju COVID-19-faraldursins eins og kunnugt og voru afleiðingarnar meðal annars þær að dánartíðni í Svíþjóð var mjög há.
„Dánarhlutfallið hjá Svíum er með því hæsta í heiminum, um 6% sýktra hafa látist samkvæmt tölum frá Johns Hopkins háskólanum í Bandaríkjunum. Sambærileg tala hér á landi er 0,3%. Hlutfallslega hafa þannig tuttugu sinnum fleiri Svíar látist af völdum Covid 19 en Íslendingar,“ segir Gauti í grein sinni og bætir við að samkvæmt umfjöllun Spiegel sé ástæðan í raun einföld: Kerfisbundin forgangsröðun hafi stjórnað því hver fékk pláss á gjörgæslu og hver ekki.
„Forgangsröðunin var þessi: Fólk yfir sextugu með tvenns konar undirliggjandi sjúkdóma mætti afgangi með gjörgæslupláss og var fremur sent í líknarmeðferð og hreinlega látið deyja. Sama gilti um fólk yfir sjötugu með einn undirliggjandi sjúkdóm og fólk yfir áttræðu var bara látið deyja,“ segir Gauti og bætir við:
„Þetta var mjög skilvirkt, svo skilvirkt að sænskur læknir sagði frá því að hann hafi verið þvingaður til að láta fólk deyja fyrir framan sig, fólk sem hann vissi að átti góða möguleika á bata með gjörgæslu. Annar staðfesti að þetta hafi stundum gerst oft á dag. Þessar tilvitnanir koma fram í ofangreindri grein í Spiegel, en eru upprunalega úr Dagens Nyheter,“ segir Gauti sem varar sterklega við sænsku leiðinni:
„Þessi svokallað „sænska leið“ felur ekkert annað í sér en að láta lækna fella dauðadóma með Excel-skjali gegn vilja sínum og Hippókratesareiði.“