Gaupi vill ekki sjá smá­hýsin rísa í Hlíðunum: „Galið og að mínu viti glæpur“

„Smá­hýsi í Skógar­hlíð er ein­hver galnasta hug­mynd sem borgar­stjórn Reykja­víkur hefur fengið,“ segir Guð­jón Guð­munds­son, í­þrótta­frétta­maður og íbúi í Hlíðunum í Reykja­vík.

Guð­jón gerir frétt Stöðvar 2 í kvöld að um­tals­efni á Twitter en þar var fjallað um á­hyggjur íbúa af byggingu smá­hýsa í Hlíða­hverfi. Gera á­ætlanir ráð fyrir að þar geti ein­staklingar sem glímt hafa við á­fengis- og vímu­efna­neyslu, eða önnur veikindi, fengið þak yfir höfuðið.

Sitt sýnist hverjum um þetta en í­búar eru ekki sáttir. Þá var bent á það í frétt Stöðvar 2 að tvö fé­lags­leg úr­ræði séu þegar á svæðinu, Konu­kot og heimili fyrir geð­fatlaða karl­menn. Þá hafi fundist notaðar sprautu­nálar á svæðinu. Það var svo tekið fram í frétt Stöðvar 2 að ný­lega hefði fíkni­efna­neytandi fundist látinn úti á svæðinu.

Guð­jón segir hug­myndina galna. „Á hvaða ferða­lagi er þetta annars á­gæta fólk. Dagur.B sá mæti drengur þarf að tukta sitt fólk,“ segir hann. Þá hefur knatt­spyrnu­fé­lagið Valur lýst á­hyggjum af á­ætlunum borgarinnar í málinu. Telur stjórnin það ó­heppi­legt að um­rædd bú­setu­úr­ræði séu svo ná­lægt Hlíðar­enda þar sem rúm­lega þúsund ung­menni æfa í­þróttir.

Helgi Seljan, frétta­maður á RÚV, gerir málið einnig að um­tals­efni á Twitter og segist efast um að stjórn Vals sé að hugsa um hags­muni barnanna. „Ég bý nær þessum fyrir­huguðu smá­hýsum en obbinn af “í­búum Hlíðanna” og ég frá­bið mér að Börkur og fé­lagar hans í þessum drauma­liðs/champions­hip mana­ger, séu að tala fyrir mig eða mín börn.“

Guð­jón Guð­munds­son gerir at­huga­semd við færslu Helga og bendir honum á að sjálfur búi hann í Eski­hlíð. „Hér er skelfi­legt á­stand í barn­vænu hverfi sem er nú þegar með fjögur úr­ræði á sama blettinum. Að setja Smá­hýsi í Skógar­hlíð er galið og að mínu viti glæpur. Hefur ekkert með Val að gera,“ segir hann og bætir við að hann sé ekki viss um að hann myndi vilja um­rædd smá­hýsi í sinn bak­garð eins og í­búar í Eski­hlíð 6.

„Þetta smá­hýsa mál hjá borginni reyndar eitt alls­herjar klúður.“