Gaupi fengið nóg: „Það sér ekki fyrir endann á þessu leikriti“

Íþróttafréttamaðurinn góðkunni Guðjón Guðmundsson hefur fengið sig fullsaddan af Covid-vandamálum íslenska landsliðsins í handbolta – eins og eflaust flestir Íslendingar.

Íslenska liðið hefur staðið sig frábærlega á Evrópumótinu en þurft að þola hvert áfallið á fætur öðru. Nú síðast í hádeginu var staðfest að Björgvin Páll Gústavsson hefði aftur greinst með Covid-19 í hraðprófi og er hann því aftur kominn í einangrun. Til að bæta gráu ofan á svart greindist Elliði Vignisson, sem hefur verið frábær fyrir Ísland á mótinu, einnig með jákvæða niðurstöðu í hraðprófi.

„Covid 19 heldur áfram að setja mark sitt á EM í handbolta. Elliði Snær og Björgvin Páll aftur. Þetta er að verða alvöru Bíó. Það ekki sér fyrir endann á þessu leikriti. Þetta er reyndar alvöru handrit. Það sem eftir stendur er leikur 7 sem verður að vinnast sama hvað.Bestu.Eina,“ segir Gaupi á Twitter en hann hefur fylgst vandlega með íslenska handboltalandsliðinu á undanförnum árum og áratugum en sonur hans, Snorri Steinn, var lykilmaður í liðinu um langa hríð.