Gaupi á­nægður með Brynjar: „Einn af fáum sem þorir að tala gegn rétttrúnaðinum vegna Covid á Íslandi“

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, vakti mikla at­hygli með pistli sínum á Vísi í gær þar sem hann gagn­rýndi sótt­varna­að­gerðir yfir­valda. Sagðist Brynjar vera hættur með­virkninni með stefnu yfir­valda í sótt­vörnum.

Fjöl­margir stigu fram og gagn­rýndu Brynjar en hann fékk þó stuðning úr ýmsum áttum, meðal annars frá Guð­jóni Guð­munds­syni, í­þrótta­frétta­manninum knáa á Stöð 2.

„Brynjar Níels­son einn af fáum á Al­þingi sem þorir að tjá sig og tala gegn rétt­trúnaðinum vegna Co­vid á Ís­landi. Loksins,“ tísti Guð­jón meðal annars á Twitter.

Tíst Guð­jóns vakti sömu­leiðis at­hygli og meðal þeirra sem gerðu at­huga­semd var kollegi Guð­jóns úr sjón­varpinu, Gísli Marteinn Baldurs­son fyrr­verandi borgar­full­trúi.

„Fyrst þú vilt ekki að við fylgjum ráðum sótt­varna­læknis og annarra sér­fræðinga í smit­sjúk­dómum núna þegar heims­far­aldur gengur yfir - ráðum hverra finnst þér þá að við ættum að fylgja? Brynjars Níels­sonar? Eða þínum ráðum minn kæri? Átt þú góðar leið­beiningar í þessari stöðu,“ spurði Gísli.

Guð­jón svaraði að bragði og sagði að hann hefði ein­fald­lega verið að benda á að þetta sem Brynjar nefndi væri þarft og nauð­syn­legt inn­legg í um­ræðuna.

„Öll um­ræða góð en ég held að best sé að fylgja ráðum hæfasta fólks. Ég veit alls­konar um hand­bolta en vona svo sannar­lega að ráðum færasta fólks þar sé fylgt frekar en mínum,“ svaraði Gísli Marteinn.

Ljóst er að skoðanir um sótt­varna­að­gerðir yfir­valda eru mjög skiptar, en það verður ekki fram­hjá því litið að fjór­tán ein­staklingar hafa látist hér á landi af völdum veirunnar í yfir­standandi bylgju far­aldursins. Erna Ýr Öldu­dóttir, fjöl­miðla­kona á Út­varpi Sögu, gerir lítið úr því í at­huga­semd undir færslu Guð­jóns.

„Hefur fólk aldrei dáið úr neinu áður? Hvað eru margir dánir á þessu ári úr hverju sem er? Fengu fjöl­skyldur þeirra sér­stakar kveðjur frá Land­spítalanum?“