Guðjón Sigmundsson, betur þekktur sem Gaui litli, er nú á sjúkrahúsi eftir að hafa dottið illa í síðustu viku. Gaui lærbrotnaði illa við fallið og sér nú fram á að vera frá vinnu næstu mánuði.
Eins og margir vita hefur Gaui rekið Hernámssetrið í Hvalfirði undanfarin ár og kom slysið í raun á versta tíma fyrir hann. Bráðlega stóð til að fara að koma safninu í stand fyrir vorið. Þar sem Gaui verður frá líkamlegri vinnu næstu mánuði er ljóst að hann getur ekki tekið þátt í þeirri vinnu.
„Ég þarf þess vegna að leita á náðir ykkar allra, vina, fjölskyldu og annarra velunnara Hernámssetursins við að aðstoða okkur að koma safninu í stand fyrir vorið. Það er í mörg horn að líta og alls konar verkefni sem þarf að sinna. Það þarf til dæmis að smíða, mála, teppaleggja, dúkaleggja, parketleggja, föndra, stilla fram munum og hengja upp, sjá um að útbúa og framreiða hressingu, þrífa jafnóðum og svo allsherjar þrif í lokin,“ sagði hann í færslu á Facebook-síðu sinni en Mannlíf greindi fyrst frá þessu.
Gaui segir að áformað sé að skipuleggja vinnudaga til dæmis á laugardögum og taka þá til hendinni við þessi verkefni. Að sjálfsögðu verður á boðstólunum hressing; matur, drykkur og jafnvel sætabrauð auk þess að hafa gaman saman.
„Ég hef síðustu daga fengið fullt af símtölum og margir hafa boðið fram aðstoð. Ég er þakklátur þessari hugulsemi og mun þiggja alla aðstoð sem Hernámssetrinu býðst og vil endilega gefa öllum sem vilja kost á að taka þátt í þessari vinnu með okkur,“ segir Gaui en hægt að er að hafa samband við hann í gegnum Facebook, til dæmis með því að skrifa athugasemd við færsluna sem hann birtir.
Gaui segir að hann sé á ágætis batavegi og segist hann í samtali við Mannlíf vilja koma sérstöku þakklæti á framfæri við starfsfólk Sjúkrahússins á Akranesi þar sem hann hefur dvalið. „Það er mjög vel hugsað um mig hér sem hraðar öllu bataferlinu,“ segir hann meðal annars.
Vorverkin á Hernámssetrinu Ég varð fyrir því óhappi fyrir rúmri viku síðan að detta illa og lærbrotnaði. Ég er núna á...
Posted by Guðjón Sigmundsson on Þriðjudagur, 9. febrúar 2021