Jósteinn Þorgrímsson, frambjóðandi Miðflokksins í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík, segir að sér hafi verið öllum lokið við að horfa á Vikuna með Gísla Marteini á föstudagskvöldið, þar sem Gísli gerði grín að bílslysi sem Ómar oddviti Miðflokks lenti í á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Jósteins á Vísi. Þar segir hann Gísla hafa kosið að segja þannig frá atvikinu að Ómar hefði sjálfur valdið árekstrinum.
„Og síðan hafi Ómar átt að hafa sagt að áreksturinn væri Degi borgarstjóra að kenna því það vantaði mislæg gatnamót. Atvikalýsing er einföld og auðskilin en einhvern veginn tókst Gísla að afbaka málið. Hugsanlega haft í huga hið fornkveðna að frásögnin eigi ekki að gjalda sannleikans,“ skrifar Jósteinn.
Hann segir hliðrun sannleikans hjá Gísla Marteini hluta af stærra vandamáli.
„Það verður að viðurkennast að það verður erfiðara að fá jákvæða umfjöllun um stefnumál Miðflokksins þegar áhrifavaldar eins og Gísli Marteinn ráða umfjöllun hjá RÚV. En þegar Gísli er farinn að segja ósatt um umferðaróhapp sem Ómar oddviti okkar verður fyrir og kenna honum um hann er mér öllum lokið.“
Segir Gísla Martein hafa litlar mætur á Miðflokknum
„Það veit alþjóð að Gísli Marteinn hefur litlar mætur á Miðflokknum og óvild hans í garð formannsins er öllum kunn. Þetta ágerist nú þar sem Miðflokkurinn einn flokka er á móti Borgarlínu og vill verja flugvöllinn í Vatnsmýri. Gísli stýrir þrýstihóp sem hann kallar „samtök um bíllausan lífsstíl”, jafnframt hefur hann lýst yfir stuðningi við Borgarlínu og vill að flugvöllurinn í Vatnsmýri fari. Þetta fer ekki framhjá þeim sem horfa á RÚV,“ skrifar Jósteinn.
Hann spyr hvort til sé of mikils mælst að Gísli fari rétt með.
„Fjölmiðlamaður eins og Gísli Marteinn sem berst fyrir því að borgin sjái honum fyrir fari um borgina hefur sinn vettvang með sínum samtökum. Skoðanir sínar má hann eiga og halda sína fundi, en ég frábið mér það að hann noti ríkisfjölmiðilinn til að sjónvarpa andúð sínni á andstæðingum sínum á kaupi frá mér.“
Hann segir Miðflokkinn vilja að fjölskyldufólk geti sinnt skyldum sínum og komist um borgina hratt og örugglega.
„Við viljum ekki vera þvinguð til að bíða eftir að áhrifavaldar búi til einhvern óraunhæfan veruleika um samgöngukerfi sem einhverjir fáir ætla að nýta sér eða nýti sér starf í skemmtiþætti til að úthúða þeim sem ekki eru á skoðun sem honum er þóknanleg.“