Gat ekki fengið vinnu hjá Sólveigu Önnu vegna kröfu um íslenskukunnáttu

Phoenix Jessica Ramos, fyrrverandi starfsmaður Eflingar, skýtur fast á Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann félagsins, í færslu á Twitter-síðu sinni.

Sólveig Anna steig fram í viðtali við RÚV í gær þar sem hún sagði það ekki vera ofarlega á lista verkalýðshreyfingarinnar að gera þá kröfu í kjarasamningum að erlendu starfsfólki verði gefinn kostur á íslenskukennslu á vinnutíma.

Áður hafði Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku, kallað eftir því að verkalýðshreyfingin gerði þá kröfu í komandi viðræðum að erlendu starfsfólki yrði gefinn kostur á íslenskukennslu á vinnutíma.

„Það er náttúrulega bara afskaplega undarlegt að þau sem tilheyra einhverri menntaelítu skuli ætla að setja ábyrgðina á verkalýðsfélög verka- og láglaunafólks sem að augljóslega hafa um stærri og veigameiri hluti að hugsa akkúrat núna heldur en það að vernda íslensku þjóðtunguna,“ sagði Sólveig í viðtalinu við RÚV.

Phoenix, sem hafði starfað hjá Eflingu síðan í febrúar 2020, var sagt upp vegna skipulagsbreytinga á skrifstofu Eflingar en hún sinnti vinnustaðaeftirliti og síðar starfi sem bókari. Hún hefur búið hér á landi frá árinu 2015 og skilur, skrifar og les íslensku en hún talar ekki eins mikla íslensku og hún myndi kjósa.

Hún lýsti því í vor að hún væri búin að sækja um störf aftur hjá Eflingu en kvaðst ekki vongóð um að fá starf. Sagði hún kröfu um góð tök umsækjenda á íslensku máli vera fyrirstöðu. Hún rifjar þetta einmitt upp á Twitter-síðu sinni og skýtur á Sólveigu Önnu.

„Fröken, þú bókstaflega útilokaðir það að ég gæti sótt aftur um starf mitt til tveggja ára eftir hópuppsagnir, með því að setja kröfu um góð tök á íslensku fyrir öll ný störf innan félagsins. En allt í lagi,“ segir hún í færslu sinni í íslenskri þýðingu.