Gary Martin var rekinn vegna nektarmyndar

ÍBV hefur rift samningi sínum við enska framherjann Gary Martin eins og greint var frá í morgun. Ástæðan er sú að Gary tók mynd af nöktum liðsfélaga sínum í búningsklefa ÍBV eftir leik liðsins gegn Reyni Sandgerði síðastliðinn sunnudag.

433.is greinir frá þessu.

Í fréttinni kemur fram að Martin hafi tekið upp myndefni og sent í gegnum Snapchat á lokaðan hóp leikmanna ÍBV. Sást einn liðsfélagi hans nakinn í umræddu myndefni.

Gary hefur sent DV/433.is yfirlýsingu vegna málsins þar sem hann staðfestir að umræddur leikmaður hafi lagt fram kæru til lögreglu vegna málsins. Staðfestir hann að hafa tekið mynd inn í klefa af umræddum leikmanni þegar hann var nýkominn úr sturtu.

Gary segir að hann hafi margoft reynt að biðja leikmanninn afsökunar án árangurs og félagið hafi brugðist við með því að rifta samningi hans.

Frétt 433.is og yfirlýsingu Gary Martin má lesa í heild sinni hér.