Garðar Gunnlaugsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, segir að þó að formaður og stjórn KSÍ sé farin frá sé vandamálið ekki á bak og burt. Þetta segir Garðar í kröftugri færslu sem hann birti á Twitter í gærkvöldi og hefur vakið mikla athygli.
„Jæja strákar.. núna er búið að segja upp minnsta hlutanum af vandamálinu, stjórn KSÍ. Vandamálið liggur þó ekki þar, vandamálið á stóran uppruna í þessari toxic menningu sem við höfum allir alist upp í sem íþróttamenn, hvort sem er áhuga- eða atvinnumenn,“ segir Garðar í færslunni og heldur áfram:
„Við höfum tækifæri núna til að breyta þessari menningu og sjá til þess að ungir iðkendur alist upp í heilbrigðara umhverfi þar sem kvenfyrirlitning og mismunun gagnvart minnihlutahópum heyra sögunni til. Þetta er ekki overnight breyting, þetta mun taka tíma en látum þetta byrja hjá okkur! Verum fyrirmyndir!“
Garðar segir svo að lokum:
„Íþróttahreyfingin þarf að fara í alvarlega naflaskoðun og ráðast á rót vandans, það þýðir ekki bera að snyrta toppinn af trénu. Meiri fræðslu til iðkenda og meiri þjálfun leiðbeinenda er lágmarkskrafa.“
Meðal þeirra sem skrifa athugasemdir við færslu Garðars er Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, en hún steig fram á dögunum og lýsti ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu landsliðsmanns. „Takk fyrir að taka afstöðu og standa með okkur!,“ segir hún.
— Gardar Gunnlaugsson (@Gunnlaugsson9) August 30, 2021