Gamla fólkið fær 30 þúsund króna rukkun frá Omega: „Við erum ekki að plokka peninga af fólki“

„Við erum ekki að plokka peninga af fólki, við viljum ekki gera það,“ segir Eiríkur Sigurbjörnsson, sjónvarpspredikari í Omega, í samtali við Fréttablaðið í dag.

Blaðið greinir frá því að einstaklingar á tíræðisaldri séu í hópi þeirra sem fá 30 þúsund króna rukkun frá sjónvarpsstöðinni Omega ofan á hefðbundna greiðsluseðla. Eiríkur var nýlega dæmdur í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik og til að greiða tæplega 110 milljónir króna í sekt.

Greiðsluseðlarnir berast í heimabanka fólks en í frétt Fréttablaðsins kemur fram að átakið felist í því að þeir sem áður hafa styrkt sjónvarpsstöðina fá sendan valgreiðsluseðil í heimabanka upp á 30 þúsund krónur. Er það ofan á tæplega fimm þúsund króna framlag á mánuði.

Þess er getið að aðferðinni sé lýst sem sambærilegri þeirri og tíðkast hjá Rauða krossinum og Hjálparstarfi kirkjunnar en upphæðirnar þar eru þó margfalt lægri. Eiríkur segir að ekki sé um of háa upphæð að ræða, fólk hafi val um að greiða þessa upphæð.

„Við erum ekki með neinar auglýsingatekjur eða ríkisstyrki,“ segir hann og bætir við að starf Omega sé mikilvægt. „Fólk er að frelsast í gegnum starfið, eignast lifandi trú á Jesú Krist og hefur bjargast,“ segir hann.

Nánar í Fréttablaðinu í dag.