Kormákur Geirharðsson, annar eigenda Ölstofu Kormáks og Skjaldar við Vegamótastíg, segir hugmyndina um að stytta afgreiðslutíma veitinga- og skemmtistaða í miðbænum vera algera þvælu í samtali við mbl.is.
Um helgina rataði það í fréttirnar að samkvæmt tölfræði lögreglunnar hafi afbrotum í miðbænum fækkað um rúmlega helming síðan afgreiðslutími knæpa og veitingastaða var styttur vegna sóttvarnareglna.
Um er að ræða fækkun í mörgum afbrotaflokkum sem tengjast skemmtanalífinu, og hafa því færri ofbeldis-, kynferðis-, fíkniefna- og ölvunarakstursbrot ratað á borð lögreglu síðustu mánuði.
Kormákur telur galið að miða tölfræði síðustu mánaða fyrir það sem áður var. Þá hafi landsmenn verið að halda aftur af sér til að hefta útbreiðslu faraldursins og það tengist ekki opnunartíma í miðbænum.
„Þetta er algjör heimska og það þarf bara að fara nokkur ár aftur í tímann. Munið hvernig þetta var þá? Þá voru það bara heimapartí og ofbeldi færðist í úthverfin í staðinn,“ sagði Kormákur í samtali við Mbl. „Þegar Covid er búið þá viljum við fara að skemmta okkur.“