Gagnrýnir samráðshóp um Vísindaþorp: „Nú vissu ungar stúlkur í háskólum landsins að þeirra tími væri kominn!!“

Stofnað var til samráðshóps um Vísindaþorp í Vatnsmýri fyrr í vikunni en Borgarstjórinn í Reykjavík, rektorar Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, forstjóri Landspítala og formaður stjórnar Vísindagarða Háskóla Íslands, skrifuðu undir samning þess efnis síðastliðinn fimmtudag.

Það vakti athygli að þar var aðeins um karlmenn að ræða og bendir Sighvatur Lárusson á það í Facebook færslu sinni. „Nú ætluðu karlarnir sko að kýla á að koma á vísindaþorpi í Vatnsmýrinni!!“

„Konur á Íslandi stóðu á bak við eldavélina og horfðu í andakt á beina útsendingu úr Norræna húsinu!“ skrifar Sighvatur. „Þvílík gleði! Þvílíkt snilld! Þvílík hamingja!“ Sighvatur bendir kaldhæðnislega á að konur séu í meirihluta í framhaldsnámi.

„Nú vissu ungar stúlkur í háskólum landsins að þeirra tími væri kominn!! að karlarnir ætluðu sko að víkja til hliðar enda konur 60% allra nema í æðri menntastofnunum landsins og þær vissu að framtíðin væri björt!!“

Brynhildur G. Flóvenz, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands, er meðal þeirra sem skrifar ummæli við færsluna. „Þetta er auðvitað algjör tilviljun - eða er það ekki?“

Færsluna má finna hér fyrir neðan.

Konur á Íslandi stóðu á bak við eldavélina og horfðu í andakt á beina útsendingu úr Norræna húsinu ! Þvílík gleði !...

Posted by Sighvatur Lárusson on Föstudagur, 12. mars 2021