Gagn­rýnir fjand­skap gegn fjöl­skyldu­bílnum: „Al­menningur ætti að vera á varð­bergi“

„Fjand­skapurinn gegn fjöl­skyldu­bílnum kemur fram á ýmsan hátt þessi misserin,“ segir stak­steina­höfundur Morgun­blaðsins í dag.

Þar er meðal annars rætt um þings­á­lyktunar­til­lögu Ólafs Þórs Gunnars­sonar og Bjark­eyjar Ol­sen Gunnars­dóttur, þing­manna VG, um að bíl­eig­endur verði rukkaðir meira fyrir að eiga bíl en þeir eru þegar rukkaðir. Vilja þeir að sam­göngu­ráð­herra og um­hverfis­ráð­herra meti hvort og þá hvernig hægt er að veita sveitar­fé­lögum heimild til að inn­heimta svo­kölluð um­hverfis­gjöld.

Ekki liggur fyrir hver skrifar stak­steina dagsins en sem kunnugt er er Davíð Odds­son rit­stjóri blaðsins. Hann segir að fjand­skapurinn gegn fjöl­skyldu­bílnum komi fram á ýmsan hátt, í Reykja­vík til dæmis með lokun gatna, fækkun bíla­stæða og and­stöðu við vega­bætur svo dæmi séu tekin.

„Ein helsta þrá­hyggjan gegn fjöl­skyldu­bílnum kemur þó fram í þings­á­lyktunar­til­lögu tveggja þing­manna Vinstri grænna sem leggja hana nú fram í sjötta sinn! Til­lagan gengur út á að leggja enn frekari skatta á fjöl­skyldu­bílinn og er af­sökunin að sú við­bótar­skatt­lagning sé í þágu um­hverfisins. Sú rök­semd er iðu­lega notuð til að reyna að leggja auknar á­lögur á borgarana eða þrengja að þeim á annan hátt, sem er miður. Um­hverfið á betra skilið. Þing­mennirnir með þrá­hyggjuna vilja að ofan á háa skatta ríkisins á bif­reiðar verði sveitar­fé­lögunum veitt heimild til að leggja á „um­hverfis­gjöld“.“

Stak­steina­höfundur bendir á að þessi við­bót kæmi líka ofan á bíla­stæða­gjöld og gatna­gerðar­gjöld sem sveitar­fé­lögin inn­heimta, „jafn­vel sveitar­fé­lög eins og Reykja­víkur­borg þar sem gatna­gerð er ekki sinnt, nema þá helst til að hefta um­ferð“ eins og stak­steina­höfundur segir orð­rétt.

„Al­menningur ætti að vera á varð­bergi gagn­vart þessari til­lögu þó að henni hafi í raun í­trekað verið hafnað. Jarð­vegurinn fyrir svona lagað er frjór meðal stjórn­mála­manna þó að bif­reiða­eig­endur viti full­vel að þeir greiða þegar allt of há gjöld.“