Gagn­rýni Salvarar á LXS vekur hörð við­brögð: „Hefði notið þáttanna betur ef Birgitta Líf hefði farið í reiði­kast og sparkað í litla hundinn“

Gagn­rýni Salvarar Gull­brár á LXS þættina hefur vakið hörð við­brögð en Salvör fer ekki fögrum orðum um stelpurnar eða þættina.

„LXS eru nýir sjón­varps­þættir sem sýndir eru á stöð 2, raun­veru­leika­þættir sem fylgja eftir lífi á­hrifa­valdanna Sunn­evu Einars, Birgittu Lífar, Ást­rósar Trausta, Magneu Bjargar og Ínu Maríu. Vin­kvenna­hópurinn er myndaður á þeim for­sendum að konurnar sem hann skipa eru fal­legar og vin­sælar á sam­fé­lags­miðlum, Birgitta líf segir frá því í þáttunum, hvernig hún hóaði hópnum saman þegar henni bauðst að bjóða nokkrum konum með sér í lúxus­ferð. L-X-S, lúxus, og kannski líka excess,“ skrifar Salvör á RÚV.

Salvör segir þættina bera þess merki að vera aug­lýsing fremur en raun­veru­leika­sjón­varp. Hug­leiðingar Salvarar um hvernig væri hægt að gera þættina á­huga­verðari hafa farið fyrir brjóstð á LXS hópnum.

„Ég hefði notið þáttanna betur ef Birgitta Líf hefði farið í reiði­kast og sparkað í litla hundinn sinn þegar hún komst að því að lúxus­þyrlan sem hún pantaði kæmist ekki upp í fjall til skvísu­hópsins í fyrsta þætti. Hún hefði öskrað: „Veistu ekki hver ég er?” á ein­hvern undir­launaðan að­stoðar­mann um leið og hún hefði ýtt mynda­vélinni frá sér og strunsað í burtu,“ skrifar Salvör.

„Eða ef Magnea myndi í ein­stak­lings­við­tölunum kalla Ínu Maríu heimska mellu fyrir að hafa hellt á­fengum drykk yfir hausinn á henni í sund­lauginni í öðrum þætti. Sunn­eva Einars færi í matar­boð til tengda­föður síns, Bjarna Ben, þar sem kæmi í ljós að B. eldri væri ekki par sáttur við starfs­svið tengda­dótturinnar, hann myndi jafn­vel kalla hana druslu eftir einum of mörg hvít­víns­glös með humrinum. Benni litli og Sunn­eva yfir­gæfu veisluna með tárin í augunum,“ bætir hún við.

Birgittu er greini­lega veru­lega mis­boðið og deilir skjá­skoti af greininni á Insta­gram-síðu sinni og spyr: „Hvað gengur á?“ en DV greinir frá.

„Hver nýtur þess að horfa á dýra­níð eða dettur svona ógeð í hug? Og vill að full­orðinn maður kalli unga konu druslu?“ skrifar Birgitta enn­fremur um um­rædda grein.

„Þessu út­varpaði Ríkis­út­varpið og setti nú í skrif­lega frétt. Gagn­rýni og skoðanir eru eitt en þetta er eitt­hvað allt annð. Er í al­vöru enginn hjá ykkur sem sér neitt at­huga­vert við svona orð­bragð og niður­rif?“

Hún endar færsluna með því að segja RÚV að „gera betur.“

Sunn­eva gagn­rýnir einnig greinina og endur­birtir færslu Birgittu á Insta­gram, þar sem hún er með yfir 57 þúsund fylgj­endur.

„Einn mesti við­bjóður sem ég hef lesið/hlustað á. Sorg­legt að sjá konur rakka niður aðrar konur til þess að upp­hefja sjálfa sig. Erum við ekki komnar lengra en þetta?“ segir hún og bætir við: „Þetta segir meira um sið­ferði höfundar en þættina okkar. RÚV, gerið betur“