Gagn­rýna úti­lokun og klækja­stjórn­mál meiri­hlutans: VG hefði verið vara­dekk

Stefán Páls­son, vara­borgar­full­trúi VG og Þórður Gunnars­son, hag­fræðingur og fram­bjóðandi Sjálf­stæðis­flokksins, segjast á mbl.is ekki vera hrifnir af nýjum meiri­hluta í borginni.

Haft er eftir Þórði að hann telji ekki vel til hans stofnað og gagn­rýnir hann meiri­hluta­flokkana fyrir úti­lokunar­menninguog klækja­stjórn­mál sem nýtt hafi verið til að ná fram þeim meiri­hluta sem flokkarnir í gamla meiri­hlutanum vildu.

Stefán segir að það hafi komið til greina af hálfu VG að ganga til liðs við meiri­hlutann. „Og þá sem annað vara­­dekk og það var ekk­ert spenn­andi við þá til­­hugs­un.“

Hann segir mikið af tæki­færum til að berja á meiri­hlutanum frá vinstri. Kjós­endur hafi átt erfitt með að að­greina flokkana í meiri­hluta í sundur. „Menn komu meira fram eins og klíka eða vina­hóp­ur frek­ar en banda­lag nokk­urra flokka. Mér finnst þetta ekki endi­­lega póli­tískt hollt.“