Gagn­rýna um­mæli Krist­rúnar: „Kemur mér að ó­vart að Krist­rún feti þessa leið“

„Hún tekur bara punkta frá Bjarna Bene­dikts­­syni sem er bara fínt ef þú ert í Sjálf­­stæðis­­flokknum en hún hefur enga sjálf­­stæða skoðun á efna­hags­­málum og fjár­­málum,“ sagði Krist­rún Frosta­dóttir, þing­­maður Sam­­fylkingarinnar, um Katrínu Jakobs­dóttur for­­sætis­ráð­herra í nýjasta hlað­­varps­þætti Chess after Dark.

Í þættinum var verið að ræða hvort Vinstri græn og Fram­­sókn hafi af­salað sér völdum til Sjálf­­stæðis­­flokksins í gegnum fjár­­mála­ráðu­neytið.

„Ég ætla ekki að gera lítið úr em­bættinu sem Katrín situr í. Það er auð­vitað þannig að ef þú ert með for­­sætis­ráð­herra í vinstri flokki og svo ertu með fjár­­mála­ráð­herra í hægri flokki – þú lest bara út úr fjár­­mála­á­ætlun mjög skýra hægri pólitík, það er bara þannig,“ sagði Krist­rún og bætti við að Bjarni ræður of miklu í stjórnar­sam­starfinu.

Um­mæli Krist­rúnar hafa fallið í grýttan jarð­veg hjá Vinstri grænum og hafa margir tekið upp hanskann fyrir Katrínu.

Meðal þeirra er Líf Magneu­dótt­ir borg­ar­full­­trúi og Anna Lísa Björns­dótt­ir, fram­­kvæmda­­stjóri þing­­flokks Vinstri grænna.

Anna Lísa segir um­mælin minna á þau sem Ágúst Ólafur Ágústs­son, fyrr­verandi þing­maður Sam­fylkingarinnar, lét falla um Katrínu 2020.

Mbl.is hafði sam­band við borgar­full­trúa Sam­fylkingarinnar Rögnu Sigurðar­dóttir sem gagn­rýndi um­mæli Ágústs á sínum tíma um um­mæli Krist­rúnar en hún taldi ekki til­efni til að gagn­rýna Krist­rúnu.