Fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson í Grundarfirði sendi sex bretti af lausfrystri ýsu til Fjölskylduhjálpar Íslands á dögunum. Óhætt er að segja að gjöfin komi sér vel enda stutt í jólin og eftirspurn eftir aðstoð alla jafna mikil á þessum árstíma.
Morgunblaðið hefur eftir Guðmundi Smára Guðmundssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að vel hafi gengið hjá fyrirtækinu að undanförnu og að sælla sé að gefa en þiggja.
Þá segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, að gjafir sem þessar séu ómetanlegar og geri það að verkum að hægt er að gera betur við skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar en ella. Hún segir að 533 fjölskyldur hafi sótt um aðstoð á höfuðborgarsvæðinu í þessari viku.
Á Facebook-síðu Guðmundar Runólfssonar kom fram að áætlað væri að gjöfin myndi duga í um átta til níu þúsund máltíðir.