Gætu þurft að samþykkja tugprósenta afskriftir

Skuldabréfaeigendur WOW air gætu þurft að samþykkja tugprósenta afskriftir af höfuðstól bréfanna til þess að kaup Indigo Partners í félaginu gangi í gegn. Skuldabréfaeigendurnir fjárfestu fyrir samtals 60 milljónir evra, jafnvirði 8,2 milljarða króna, í skuldabréfaútboði WOW air síðasta haust. Vísir.is greinir frá.

Þessar afskriftir eru á meðal krafna Indigo Partners, en auk þess hefur bandaríska fjárfestingafélagið krafist þess að endanlegur eignarhlutur Skúla Mogensen, forstjóra og stofnanda WOW air, í félaginu verði mun minni í kjölfar viðskiptanna en áður hefur verið fjallað um.

Vísir segir kröfur Indigo Partners hafa komið Skúla verulega á óvart, og hafi valdið honum miklum vonbrigðum. Hann hefði staðið í þeirri trú að aðilar væru langt komnir með að ganga frá viðskiptunum.

Þá eru fulltrúar bandaríska fjárfestingafélagsins sagðir gera sér vel grein fyrir því hve sterk samningsstaða þeirra sé gagnvart veikri stöðu Skúla og lánardrottna WOW air. WOW air eigi fáa aðra valkosti en að fallast á skilyrði Indigo Partners enda muni þeir að óbreyttu tapa kröfum sínum að stórum hluta ef viðræður íslenska lággjaldaflugfélagsins og bandaríska félagsins ganga ekki eftir og greiðsluþrot blasir við WOW.