Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekkert benda til þess að COVID-19 sjúkdómurinn sé vægari nú en hann var síðastliðinn vetur. Hann sagði faraldurinn áfram vera í línulegum vexti og er fyrirsjáanlegt að álag á heilbrigðiskerfið verði töluvert ef ekki er gripið inn í.
„Við gætum farið að sjá hér alvarlegri faraldur með alvarlegum afleiðingum ef ekki verður gripið inn í Landspítala,“ sagði Þórólfur á upplýsingafundi almannavarna í dag og vísaði til þess að fimmtán væru nú inniliggjandi með COVID-19 og þrír á gjörgæslu, þar af tveir í öndunarvél.
Hann sagði að það væri athyglisvert að skoða þá einstaklinga sem hafa verið að greinast og hvar þeir hafa smitast. „Þetta eru einstaklingar sem eru að smitast á vinnustöðum, innan fjölskyldna, í vinahópum sem eru að hittast og halda sér glaðan dag,“ sagði Þórólfur og bætti við að einnig mætti rekja smit til líkamsræktarstöðva og kráa en einnig væri eitthvað um smit sem væri erfitt að rekja.
Mikilvægt að standa saman
Gripið var til hertra aðgerða á miðnætti sem fela í sér strangari reglur um fjöldasamkomur en nokkrum stöðum hefur verið lokað og grímuskylda sett á annars staðar. „Þær aðgerðir sem hafa nú komið til framkvæmda í dag eru náttúrlega meira íþyngjandi ... þær aðgerðir sem hafa verið í gangi til þessa eru miðlungs íþyngjandi aðgerðir,“ sagði Þórólfur.
Eitthvað hefur verið um gagnrýni í garð stjórnvalda vegna aðgerðanna en fólk hefur gagnrýnt stjórnvöld ýmist fyrir of strangar og of vægar aðgerðir. Þá hafi það verið gagnrýnt að reglurnar gildi á öllu landinu en ekki aðeins höfuðborgarsvæðinu, þar sem flest smit eru að greinast þar.
„Það er vissulega hægt að gagnrýna ýmislegt sem við höfum gert en það sem skiptir mestu máli núna er það að menn standi saman um þær aðgerðir sem ákveðið hefur verið að grípa til. Þannig náum við árangri og þannig mun okkur takast að kveða þennan faraldur niður á fullnægjandi máta.“