Gæðastimpill fyrir Njál Trausta að Samherjamenn hafi horn í síðu hans

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að það sé gæðastimpill fyrir Njál Trausta Friðbertsson að fulltrúar Samherja hafi horn í síðu hans.

Nafn Njáls Trausta ber á góma í samtölum skæruliðadeildar Samherja, en samkvæmt gögnum Kjarnans ræddu þau Páll Steingrímsson skipstjóri og Arna Bryndís McClure, yfirlögfræðingur Samherja, um prófkjör Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi sem fram fer um næstu helgi.

Er Páll sagður greina frá samtali sem hann átti við Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, þess efnis að Þorsteinn vilji ekki sjá Njál í efsta sæti listans. Arna Bryndís er sögð hafa svarað því til að „enginn“ vilji Njál í efsta sætið.

Njáll Trausti ræddi þetta meðal annars við Fréttablaðið í dag þar sem hann sagðist ekki hafa hugmynd um það af hverju Samherjamenn væru með horn í síðu hans.

Björn Leví er vanur því að segja sínar skoðanir umbúðalaust og hann virðist hafa nokkuð gott álit á Njáli Trausta, þótt þeir séu pólitískir andstæðingar.

„Ekkert nema gott um Njál að segja fyrir utan skoðanaágreining sem er bara eðlilegt í pólitík.

Kannski er hrós frá mér til Njáls ekki hjálplegt í augum kjósenda Sjálfstæðisflokksins, en hrósi á að skila til þess sem á það skilið. Við þurfum stjórnmál sem hrósa frekar andstæðingum en bölsóta þeim. Það er ekki auðvelt af því að menningin er í hina áttina - en þetta er rakið tilefni til þess að brjóta þann ís,“ segir hann.