Gabríel birti mynd af sér á Instagram í gærkvöldi: „Sjáumst á Instagram vikunnar hjá DV“

Strokufanginn Gabríel Douane Boama er enn eftirlýstur af lögreglu eftir flóttann úr Héraðsdómi Reykjavíkur að kvöldi 19. apríl síðastliðinn.

Gabríel er tvítugur að aldri og á þrátt fyrir það langan ofbeldisferil að baki eins og rakið var í umfjöllun DV á dögunum.

Hann birti mynd af sér í gærkvöldi á Instagram og er þetta í annað sinn frá flóttanum sem hann notar samskiptamiðilinn vinsæla til að koma skilaboðum áleiðis. Myndina má sjá hér að neðan en óhætt er að segja að hún hafi vakið athygli miðað við „læk“ og athugasemdir.

„Sjaumst a instagram vikunnar hja dv a manudaginn,“ segir til dæmis í einni athugasemd.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur hvatt Gabríel eindregið til að gefa sig fram. Þá minnti hún á það í gærkvöldi að refsivert er að aðstoða brotamann við að losna undan handtöku eða refsingu.

Myndina má sjá hér að neðan: