Gabríel Benjamín, starfsmaður Eflingar, vandar Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formanni félagsins, og Viðari Þorsteinssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins, ekki kveðjurnar í pistli sem hann skrifar á vef Vísis.
Óhætt er að segja að atburðir síðustu mánaða innan Eflingar hafi haft veruleg áhrif á Gabríel, en eins og kunnugt er stendur formannskjör yfir í Eflingu þar sem Sólveig Anna er meðal annars í framboði. Gabríel starfaði sem blaðamaður áður, meðal annars á Stundinni, þar sem hann lét sig stéttabaráttu varða.
Ömurleg atburðarás
„Ég fylgdist með og ritaði sögu baráttuafla sem vöktu sofandi hreyfingu til dáða. Ef ég væri enn blaðamaður þætti mér þessi atburðarás eflaust spennandi og forvitnileg. Þess í stað finnst mér hún ömurleg. Ég sef varla, á erfitt með einbeitingu og finn fyrir gífurlegum kvíða í hvert skiptið sem ég fer á fætur. En það er líka því að ég er ekki lengur blaðamaður, heldur starfsmaður Eflingar, og ég hef fylgst með þessari lygilegu atburðarás innan frá, allt frá því að ég hóf störf hjá Eflingu fullur aðdáunar gagnvart Sólveigu Önnu. Það er ekkert spennandi við hana; sannleikurinn er sá að fyrrverandi formaður festi heilan vinnustað í gapastokk. Hún hefur æpt svívirðingum, aðdróttunum og lygum að starfsfólki og gefið á það skotleyfi,“ segir hann.
Gabríel hóf störf sem fulltrúi á kjaramáladeild Eflingar í maí 2021.
„Ég hóf störf hjá Eflingu vegna þess að ég treysti hreyfingunni og forystu hennar til að reka alvöru verkalýðsbaráttu og verja kjör félagsmanna af fullum þunga. Ég var var um mig því ég hafði heyrt af óheppilegum uppsögnum, meðal annars af starfslokum Maxim Baru, fyrrum sviðsstjóra félagssviðs, og Christinu Milcher, starfskonu á félagssviði. Þegar ég vann sem blaðamaður hafði Sólveig Anna reynt að fá mig til þess að taka viðtal við Maxim fyrir Stundina en hún talaði um hann og svið hans sem byltinguna sem Eflingu sárvantaði. Tveimur dögum fyrir undirritun nýs kjarasamnings 2019 var Maxim sagt upp. Maxim sagðist hafa spurt erfiðra spurninga um kjarasamninginn og því hefði honum verið vísað í burtu.“
Gat varla sofið
Í grein sinni fer hann um víðan völl og rekur ýmsar ákvarðanir Sólveigar og Viðars sem honum finnst orka tvímælis. Það var svo föstudaginn 29. október að allt sauð upp úr, að sögn Gabríels „þegar Sólveig Anna tók yfir starfsmannafund og sagði klökk að hún hefði beðið með kvíðahnút í maganum í fimm mánuði vegna ályktunar sem hún óttaðist að ef yrði gerð opinber yrði trúverðugleiki hennar enginn. Hún sagði að RÚV væri að fjalla um málið og ef við myndum ekki stöðva fjölmiðlaumfjöllunina myndu hún og Viðar segja af sér.“
Eins og kunnugt er fór það svo að Sólveig og Viðar sögðu af sér og segir Gabríel að ábyrgðinni hafi verið varpað yfir á starfsfólkið.
„Ástandið á skrifstofunni var vægast sagt hörmulegt á þessum tíma. Ég fann fyrir svo miklum kvíða og óöryggi að ég gat varla sofið, andvaka yfir áhyggjum um hvað morgundagurinn muni bera í skauti sér. Þegar ég svaf þá dreymdi mig um að vera aftur á þessum föstudagsfundi. Ég sá sömu ónotatilfinninguna á samstarfsfólki mínu, en veikindi urðu svo tíð að heilu og hálfu sviðin lágu nánast niðri. Árásir á samfélagsmiðlum urðu svo þungbærar að það var alvarlega rætt að ráða öryggisvörð, svona ef einn af mörgum fylgjendum Sólveigar Önnu sem höfðu talað um að mæta á skrifstofuna og „hreinsa“ hana myndu láta verða að því.“
Grein Gabríels má lesa í heild sinni á vef Vísis.