Á morgun hefst bólusetning gegn COVID-19 hér á landi, en eins og kunnugt er kom bóluefni Pfizer til landsins í morgun.
Sérstök athöfn verður í húsnæði Landlæknis klukkan 9 þar sem fjórir starfsmenn Landspítalans verða bólusettir. Klukkan 10 hefjast aðrar bólusetningar en þá verður hafist handa við að bólusetja starfsfólk Landspítalans og einstaklinga á hjúkrunarheimilum.
Í tilkynningu frá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að íbúi á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð fái bóluefni klukkan 10 í fyrramálið, en um er að ræða rúmlega sextugan einstakling. Sá heitir Þorleifur Hauksson að því er fram kemur á Vísi.
Á sama tíma fá fyrstu starfsmenn Landspítalans bóluefnið, en bólusetningar spítalans fara á morgun fram í Skaftahlíð, Landakoti og á Vífilsstöðum. Reiknar spítalinn með því að það taki um tvo daga að bólusetja þá 770 starfsmenn sem fyrsti skammtur dugar fyrir, að því er fram kemur í tilkynningu.
Eftir hádegi verður haldið áfram að bólusetja framlínufólk í heilbrigðiskerfinu, en þessar bólusetningar fara fram á Suðurlandsbraut.
Í tilkynningu sem Landspítalinn sendi frá sér rétt fyrir jól kom fram að farið yrði eftir forgangsröðun sóttvarnalæknis og reglugerð um forgangsröðun um bólusetningu við COVID-19. Þannig er starfsfólki bráðamóttöku í Fossvogi, bráðamóttöku barna, gjörgæsludeilda og COVID-19 göngudeildar boðin bólusetning. Einnig verður starfsfólki sem tók aukavaktir á þessum deildum í þriðju bylgju COVID-19 boðið bólusetning.