Fyrrverandi ráðherra ósáttur með umferðarljósin: „Vonandi slasast enginn“

Gylfi Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi ráðherra, virðist ósáttur með ljóssastýringu á Seltjarnarnesi, þar sem hann er íbúi.

Í færslu sem birtist í Facebook-hópnum Íbúar á Seltjarnarnesi gagnrýnir Gylfi umferðarljósin í bæjarfélaginu og segir þau svo hæg fyrir gangandi fólk að líklegast sé að vegfarendur hreinlega stelist yfir á rauðu.

„Mér sýnist niðurstaðan í stóra ljósastýringarmálinu hafa orðið að láta fótgangandi fá sér ís eða kaffi hjá Örnu þann tíma sem líður frá því að þeir ýta á takkann og leggja fram beiðni um grænt gönguljós og þangað til ljósið er veitt.“ skrifar Gylfi sem á eflaust við um ljósin við Suðurströnd. Hann bætir við að hann óttist að fólk gæti slasast vegna þessa.

„Á meðan skína til skiptis rauð og græn ljós á bílana nokkrar umferðir. Efast reyndar um að þetta leiði til annars en að fótgangandi ýta á takkann og gefast svo upp á að bíða og stelast yfir á rauðu. Svo kemur grænt á gangandi löngu síðar þegar enginn bíður lengur eftir því. Vonandi slasast enginn vegna þess.“