Ragnhildur Sveinsdóttir, fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára Guðjohnsen, eins besta knattspyrnumanns í sögu íslensku þjóðarinnar, hefur stefnt honum fyrir dóm.
Mannlíf greindi fyrst frá þessu í morgun.
Fyrirtaka í málinu er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur næstkomandi þriðjudag. Ekki liggur fyrir um hvað málið snýst en Reimar Snæfells Pétursson er lögmaður Ragnhildar og Þorsteinn Einarsson lögmaður Eiðs Smára.
Eiður Smári og Ragnhildur skildu árið 2017 eftir að hafa verið saman í 23 ár. Þau eiga fjögur börn, þar af eru tveir landsliðsmenn Íslands í knattspyrnu og líkur á að þeir verði þrír áður en langt um líður.