Segja má að nýr auglýsingabæklingur Húsasmiðjunnar hafi vakið nokkra gagnrýni á samfélagsmiðlum, einkum hvernig karlar annars vegar birtast og hins vegar konur.
Í bæklingnum eru meðal birtar auglýsingar fyrir parket, flísar og tæki og tól fyrir eldhús og bað. Tvær fyrirsætur myndskreyta bæklinginn, karl og kona, en athygli vekur að karlinn heldur á stórum tækjum og tólum, til dæmis borvél og stórri rörtöng á meðan konan birtist á einni myndinni við hliðina á þvottavél og á annarri með álpott í höndunum.
Einhverjir vilja meina að þarna birtist úreltar staðalímyndir kynjanna og er Edward H. Huijbens, fyrrverandi varaformaður Vinstri grænna, á þeirri skoðun. Hann deilir myndum af bæklingnum á Facebook-síðu sinni og segir: „Húsasmiðjan sko með puttann á púlsinum.“
Þegar hann er spurður hvort verið sé að fetta fingur út í það hvernig fyrirsætunum er stillt upp, segir hann: „Konur þvo og elda... karlar bora og græja... áhugavert.“ Hann segir svo síðar í þræðinum til að útskýra gagnrýni sína betur:
„Þetta sum sé leggur á árar staðlaðra kynjamynda. Þannig er þetta áhugavert að þrátt fyrir alla viðleitni í þá átt að brjóta niður staðlaðar myndir um hlutverk kynja kemur svona bæklingur í hvert hús.“ Hann segir svo að sú staða að karlar séu í miklum meirihluta iðnaðarmanna sé ekki náttúrulögmál. Sú staða sé einmitt tilkomin vegna ítrekaðra smáatriða eins og birtast í umræddum bæklingi.