Fyrirsæta og flugfreyja í 50 ár

Brynja Nordquist er mörgum kunn enda hefur hún komið víða við á undanförnum áratugum. Hún lærði dans ung að árum hjá Dansskóla Hermanns Ragnars og kynntist þá þeim hjónum Hermanni og Unni Arngrímsdóttir sem urðu eins konar fyrirmynd fyrir það sem koma skyldi. Hún stundaði módelstörf hjá Módelsamtökunum sem Unnur átti og rak en árið 1979 stofnaði hún Módel ´79 ásamt góðum nokkrum vinkonum sínum s.s. Kristínu Waage, Helgu Møller, Lóló og fleiri konum. Eins og margir muna urðu þetta aðaltískusýningasamtök landsins og sýndu fatnað víða þegar dansleikjahald og diskóbylgjan var að hefja sitt blómaskeið í kjölfar stofnunar veitinga- og skemmtistaðarins Hollywood árið 1978. Í framhaldi tók Brynja mikinn þátt í kynningarstarfi á vegum Hildu hf. en fyrirtækið kynnti glæsilegar ullarvörur sínar á Bandaríkjamarkaði og var Brynja í tíðum ferðum til New York og víðar á 9. Áratugnum. Hún réði sig síðan til Icelandair sem flugfreyja rétt eftir aldamótin og lét af því starfi fyrir skömmu eftir að 67 ára aldrinum var náð og sagði skilið við fyrri störf. Í viðtali við þáttastjórnandann Sigurð K. Kolbeinsson lýsir Brynja því hversu mikil breyting varð á lífi sínu eftir að hún hætti að neyta áfengis og tók að sinna öðruvísi hugðarefnum. Hún giftist í annað sinn, yngri manni og þekktum Íslendingi, og nýtur lífsins í dag og hlakkar bara til að eldast. Hún kemur m.a. inni á mikilvægi þess að eldri borgarar geti notið lífsins til hins ítrasta og ætlar að leggja sitt að mörkum til að ná settum markmiðum.

Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is