Fýkur í Ey­þór: „At­kvæði óskast í skiptum fyrir lygar“

Ey­þór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks í Reykja­vík, segir að Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borgar­full­trúi Pírata, hafi gert fátt annað undan­farið en að búa til sam­særis­kenningar.

Ey­þór birtir að­senda grein í Frétta­blaðinu í dag en til­efnið er upp­nám sem varð í borgar­stjórn á þriðju­dag þegar Dóra sakaði Ey­þór um spillingu. Yfir­skrift greinar Ey­þórs er: At­kvæði óskast í skiptum fyrir lygar.

Dóra kom inn á eignar­hlut Ey­þórs í Ár­vakri, út­gáfu­fé­lagi Morgun­blaðsins, á fundi borgar­stjórnar í vikunni og tengdi við upp­byggingu á Sel­fossi. Sagði hún að Ey­þór virtist hafa fengið fleiri hundruð milljóna að gjöf frá Sam­herja. Sagðist Dóra í­trekað hafa spurt Ey­þór út í málið en án full­nægjandi svara.

Ey­þór er afar ó­sáttur við Dóru Björt eins og lesa má glögg­lega í grein hans í Frétta­blaðinu.

„Eftir að hafa ráðist gegn Neyðar­línunni hefur hún snúið sér að mér per­­sónu­­lega. Hún hefur í­trekað haldið því fram að mér hafi verið mútað. Verið gefin hundruð milljóna gegn því að af­henda Sam­herja mið­bæ Sel­­foss. Ekkert er fjær sanni,“ segir Ey­þór sem segir að hann per­sónu­lega hafi ekki fengið eina krónu í greiðslu frá Sam­herja

„Hvað þá hundruð milljóna. Fé­lag í minni eigu keypti hlut í Morgun­blaðinu með selj­enda­láni eins og áður hefur komið fram.“

Ey­þór bendir á að Reykja­víkur­­borg sjálf veiti selj­enda­­lán upp á hundruð milljóna í fjölda verk­efna. Ef selj­enda­­lán teljist mútur í orða­­bók Pírata, þá séu þeir sjálfir að stunda þær.

„Ég sat í bæjar­­stjórn Ár­­borgar 2006-2014, en skipu­lag mið­bæjar Sel­­foss var sam­þykkt í í­búa­­kosningu árið 2018. Byggingar­­leyfin voru síðan gefin út af Pírötum en ekki Sjálf­­stæðis­­flokki. Það er því fræði­­lega ó­­­mögu­­legt að gera mig á­byrgan fyrir þessu. Ein­falt gúgl hefði getað bjargað Dóru frá því að koma með svona göt­ótta sam­­særis­­kenningu,“ segir hann.

Ey­þór vitnar svo í Joseph Mc­Car­ty, öldunga­deildar­þing­mann Repúblikana, frá 1947 til 1957.

„Mc­Cart­hy beitti þeirri tækni að segja að við­komandi þyrfti að „svara betur“. Sama hvernig svarið var. Nú er ég ekki að tala um Smára Mc­Cart­hy þing­mann og fyrr­verandi hlut­hafa í Stundinni, heldur Joseph Mc­Cart­hy þing­mann. Síðasta grein Dóru í Stundinni nær nýjum lægðum, en þar tengir hún mig, Sam­herja og dóms­­mála­ráð­herra saman við Egypta­land og fjöl­­skyldu flótta­manna,“ segir Ey­þór sem endar grein sína á þessum orðum:

„At­­kvæða­veiðarnar verða ekki dapur­­legri. Það væri nær fyrir Pírata sem hafa verið við völd í 6 ár að svara fyrir hvers vegna heimilis­lausir eru tvö­falt fleiri en fólk hefur þurft að flytja úr Reykja­­vík vegna hús­­næðis­skorts. Mat eldri borgara og sam­­göngu­vandann. Og stöðu skóla­barna inn­flytj­enda. Ekkert af þessu hugnast Dóru Björt Guð­jóns­dóttur að ræða þrátt fyrir að hún sé for­­maður mann­réttinda­ráðs borgarinnar sem kýs að fara á lægsta plan þess sem ræðst að per­­sónu fólks. Án inni­­stæðu. Það er ekki að furða að borgar­­stjórn mælist með lítið traust.“