Furðulegt dómsmál fyrir norðan: Vaknaði upp við vondan draum á nýársnótt

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi á dögunum karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi í nokkuð óvenjulegu máli. Maðurinn var ákærður fyrir húsbrot og líkamsárás aðfaranótt 1. janúar 2020.

Svo virðist vera sem maðurinn hafi farið húsavillt þegar hann fór í heimildarleysi inn í ótilgreint íbúðarhúsnæði þar sem hann lagðist til hvílu í hjónaherbergi íbúðarinnar.

Segja má að húsráðandi hafi vaknað upp við vondan draum því maðurinn réðst á hann í rúminu, tók hann hálstaki aftan frá og herti að hálsi hans. Þá potaði hann í auga mannsins í átökum sem urðu í kjölfarið. Segir í ákæru að hinn óboðni gestur hafi ætlað að koma húsráðanda úr eigin húsi.

Maðurinn játaði sök fyrir dómi og kvaðst iðrast gjörða sinna. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til eins árs. Þá var manninum gert að greiða tæpar 200 þúsund krónur í sakarkostnað.