Furðu­leg aug­lýsing Guðmundar Gauta gerir allt vit­laust á Face­book: „Hentar vel sem for­réttur í fermingar­veislur“

Aug­lýsing Guð­mundar Gauta Sveins­sonar hefur vakið gríðar­lega mikla at­hygli á sölu­síðunni Brask og brall.is. At­hyglin var svo mikill að Guð­mundur endaði sem gestur í út­varps­þættinumÍs­land vaknar í morgun.

Guð­mundur á­kvað að setja tvær dósir að „há­gæða sænskri síld“ til sölu sem „hentar vel sem for­réttur í fermingar­veislur.

Um er að ræða sænska súr­síld eða „sur­stömming“. Guð­mundur vara þó við að dósirnar væru að­eins farnar að bólgna en hann tekur ekki fram hversu gamlar þær eru.

Sem fyrr segir hefur færslan vakið mikla at­hygli og hefur Guð­mundur fengið nóg af til­boðum en 150 manns hafa sett at­huga­semd við færsluna.

„Fyrr­verandi vinnu­fé­laga minn – honum á­skotnaðist önnur dósin. Við ætluðum alltaf að gera til­raun til að borða þetta en höfðum svo ekki kjarkinn í það,“ sagði Guð­mundur í Ís­land í dag.

„Síminn minn er búinn að vera stans­laust bípandi og flautandi og gólandi síðasta sólar­hringinn. Búinn að fá ótal fyrir­spurnir og spurningar. Og ein­hver til­boð,“ bætir hann við.

Hæsta boð er nú 6000 krónur.

Hlustaðu á við­talið hér.