Myndband af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvíslast á og flissa undir tilfinningaþrungnum orðum Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, í Kryddsíldinni á Stöð 2 á gamlársdag hefur vakið talsverða athygli í netheimum.
Víða var komið við í Kryddsíldinni á gamlársdag – árlegum uppgjörsþætti af hinu pólitíska sviði – eins og venja er og ræddi Inga meðal annars sín helstu baráttumál; fátækt og málefni þeirra sem búa í sárri neyð.
„Mér finnst algjörlega galið að ætla að halda því fram að við getum opnað hér faðminn og sagt komið allir til okkar, af því hér er nóg af öllu. Og ef þú segir eitthvað annað þá er sagt: Ætlar þú að fara að bera saman þetta og hitt? Voga þú þér ekki að gera það þarna rasistinn þinn,“ sagði Inga meðal annars.
Undir ræðu Ingu var klippt á þau Katrínu og Sigmund sem hvísluðust á og flissuðu. Hvað þeim fór á milli er ekki vitað en sumir eru á því að Katrín og Sigmundur hafi sýnt Ingu dónaskap með framkomu sinni. Um þetta hefur meðal annars verið rætt í Facebook-hópi Sósíalistaflokksins.
„Eitt var það þó sem út af stóð og það var hegðun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Katrínar Jakobsdóttur undir ræðu Ingu því þarna stungu þau tvö saman nefjum og hvísluðust á og ráku svo upp hlátursrokur og blimskuðu augunum kvikindislega til Ingu Sæland. Á það var hreint út sagt viðbjóðslegt að horfa,“ sagði Jack Hrafnkell Daníelsson í innleggi sínu í grúppuna í gær.
Undir þetta taka margir og segir einn til dæmis:
„Alveg sama hvað manni finnst um Ingu, þá er ég 100% sammála þessu. Lágmark að sýna virðingu og haga sér eins og fullorðið fólk, ekki láta eins og 14 ára gelgju bullys.“
Annar netverji bætir við: „Þetta var ógeðslegt…“
Enn annar bætir svo við: „Þau haga sér eins og skólakrakkar“
Einn kemur þó Katrínu og Sigmundi til varnar og segir að miðað við stemninguna komi það ekki á óvart að fólk hafi skellt upp úr. Inga hafi talað í hringi og farið aftur á bak og áfram í ræðu sinni.
Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.
Ætlið þið að deila því með bekknum hvað er svona fyndið, Katrín og Sigmundur? pic.twitter.com/sIw9Tjv32i
— Grétar Þór (@gretarsigurds) December 31, 2022