Óhætt er að segja að sú ákvörðun Stöðvar 2 að fréttatímar og tengt efni verði aðeins aðgengilegt áskrifendum hafi vakið athygli. Stöð 2 tilkynnti í morgun að frá og með 18. janúar þurfi áhorfendur að vera áskrifendur til að sjá kvöldfréttatíma stöðvarinnar.
Þetta er mikil breyting enda 34 ár síðan kvöldfréttirnar hófu göngu sína og á þeim tíma hafa þær ávallt verið í opinni dagskrá.
„Þetta er HUGE,“ segir Kjartan Hreinn Njálsson, fyrrerandi fréttamaður á Stöð 2 og aðstoðarmaður landlæknis á Twitter. Undir færslu hans hefur skapast nokkur umræða um þessa ákvörðun. Guðmundur Jóhannsson, samskiptafulltrúi Símans, segir til dæmis að þetta sé upphafið að endalokum fréttastofunnar. Þá segir einn að þessi ákvörðun sé sú vitlausasta í bransanum síðan Randveri Þorlákssyni var sagt upp í Spaugstofunni.
Forsvarsmenn Stöðvar 2 hafa útskýrt ákvörðunina með þeim rökum að með breytingunni sé verið að tryggja fréttastofuna enn frekar í sessi. „Við erum þess fullviss að með stuðningi áskrifenda skapist forsendur til að standa vörð um öfluga fréttaþjónustu og framleiðslu innlends efnis,” sagði Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2, í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í morgun.
Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter.
Mjög athyglisvert panikkmúv. Þetta hefur litið rosa vel út í Excel-skjalinu. Og eins og við vitum nú báðir, þá er langbest að láta Excel-skjalið ráða för á fjölmiðlum. ;)
— S. Mikael Jónsson (@S_Mikael_J) January 11, 2021
Ég skil ekki rökin fyrir þessar ákvörðun? Á áskriftarsala vegna eftirspurnar eftir fréttum að vega upp tapið í auglýsingasölu sem fylgir væntanlega minna áhorfi?
— Ásgeir Jónsson (@sonurjons) January 11, 2021
Upphafið að endalokum fréttastofu ST2. Fyrsta skrefið var stytting fréttatímans um helgar fyrr í vetur í næstum ekkert.
— Gummi Jóh (@gummijoh) January 11, 2021
Vó....
— Stígur Helgason (@Stigurh) January 11, 2021
Að læsa fréttum Stöð 2 er vitlausasta ákvörðun í bransanum síðan Randver var rekinn úr Spaugstofunni.
— Ragnar Eyþórsson (@raggiey) January 11, 2021
Þetta útspil hjá Stöð2 er sérstakt, spurning hvort þetta hafi önnur áhrif en þeir vonast eftir og fréttatíminn komi aftur í opina dagskrá eða verði almennt lagður niður.
— Óli Valur Pétursson (@oli_valur) January 11, 2021
Skil ekki alveg þetta múv hjá Stöð 2.......
— Matti Matt (@mattimatt) January 11, 2021