Daniel Taylor, íþróttafréttamaður The Athletic í Bretlandi, fjallar í morgun um mál knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar. Fréttablaðið greindi fyrst frá hérlendis.
Eins og kunnugt er var Gylfi handtekinn í fyrrasumar vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi og hefur mál hans verið á borði lögreglu nú í um ellefu mánuði. Gylfi, sem er án nokkurs vafa einn besti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi, hefur ekkert spilað síðan málið kom upp.
Í umfjöllun Taylors kemur fram að Gylfi búi nú á öðrum stað en þeim sem hann var á þegar lögregla knúði dyra á heimili hans í fyrrasumar. Er hann sagður búa í svokölluðu öryggishúsi (e. Safe House).
„Hann spilar ekki golf með liðsfélögunum, fær sér ekki kaffi á kaffihúsi með þeim. Hann hefur verið fluttur á leynilegan stað og lögreglan heldur rannsókn sinni áfram,“ segir Taylor í greininni og bætir við að hann hafi upplýsingar um að fartölvan hafi verið tekin af honum.
Þá hafi borist upplýsingar um að búið sé að teipa yfir þakglugga á húsinu sem Gylfi búi nú í til að koma í veg fyrir að hægt sé að taka myndir með dróna í gegnum þá.