Samfylkingin er sögð hafa kallað til vinnustaðasálfræðing til að bæta samskiptin innan flokksins, sérstaklega þá á milli Kristrúnar Frostadóttur og Oddnýjar Harðardóttur. Orðið á götunni á DV greinir frá þessu og hefur eftir heimildum sínum.
Kristrún hefur komið býsna öflug inn á hið pólitíska svið og eru ýmsir sem sjá hana fyrir sér sem framtíðarleiðtoga flokksins.
Hún er þó ekki allra og í Orðinu á götunni kemur fram að innan Samfylkingarinnar sé jafnvel ótti til staðar um frama hennar innan flokksins. Kemur fram að hún „hafi svo gott sem jarðsett drauma reyndari stjórnmálamanna um leiðtogahlutverk innan flokksins“.
Fullyrt er að þessi breytta sviðsmynd hafi valdið ólgu innan flokksins og haft áhrif á móralinn innan þingflokksins. Kemur fram að mórallinn hafi rétt svo slefað yfir frostmarkið að undanförnu. Þá hafi vinnustaðasálfræðingur verið kallaður til en árangurinn hafi látið á sér standa.
Loks er þess getið að Samfylkingarfólk sjái fyrir sér að Dagur B. Eggertsson taki við keflinu af Loga Einarssyni þegar hann lætur af formennsku og Kristrún yrði frábær kostur sem varaformaður. Kristrún er þó sögð telja best að hlutverkum hennar Dags verði víxlað þegar þar að kemur.