Full­yrðir að Einar skrifi sögu Jóns Ás­geirs

Full­yrt er á vef fjöl­miðla­mannsins Ei­ríks Jóns­sonar að rit­höfundurinn Einar Kára­son vinni að því að skrifa ævi­sögu Jóns Ás­geirs Jóhannes­sonar athafnamanns.

Einar er einn af okkar fremstu rit­höfundum og hefur hann áður skrifað ævi­sögur merkra Ís­lendinga, til dæmis Jóns Ólafs­sonar sem kom út árið 2005 og Frið­riks Þórs Frið­riks­sonar árið 2019.

Í frétt á vef Ei­ríks kemur fram að mikil leynd hvíli yfir verk­efninu og ekki sé vitað hvort bókin komi út fyrir þessi jól eða þar­næstu jól.