„Það er gríðarlega þungu fargi af mér létt og okkur í fjölskyldunni, að hafa unnið fullnaðarsigur í þessu máli er ekkert annað heldur en stórkostlegt,“ segir Atli Viðar Þorsteinsson í samtali við Fréttablaðiðeftir hann lagði Mannlíf og Reyni Traustason ritstjóra í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Atli fór í mál við Mannlíf og Reyni fyrir að endurbirta minningargrein hans úr Morgunblaðinu sem hann skrifaði um bróður sinn.
Atli Viðar hefur verið opinskár með málið á samfélagsmiðlum. Hann segir í samtali við Fréttablaðið fagna niðurstöðunni, hún komi í veg fyrir að Mannlíf geti haft sorg aðstandenda að féþúfu.
„Það er gríðarlega þungu fargi af mér létt og okkur í fjölskyldunni, að hafa unnið fullnaðarsigur í þessu máli er ekkert annað heldur en stórkostlegt,“ segir Atli.
„Þetta geirneglir það að svona framkoma eins og hjá Mannlíf og Reyni Traustasyni er siðferðislega röng. Það vissu það allir en nú er það staðfest að þetta er einnig rangt í augum laganna.“
Endurbirting minningargreina Morgunblaðsins var tekin fyrir af siðanefnd Blaðamannafélagsins fyrir um tveimur árum en niðurstaða nefndarinnar var sú að birtingin væri opinber og ekki brot á siðareglunum.
Atli segir að það mikilvægasta sé að niðurstaða héraðsdóms komi í veg fyrir að Mannlíf geti gert þetta aftur gegn öðrum. „Það er stóri sigurinn í þessu máli, að fólk fái að syrgja í friði. Það sem Reynir gerir þarna er að hafa sorg aðstandenda að féþúfu og heggur í fólk á sinni viðkvæmustu stund.“
Hann segir málflutning Mannlífs hafa byggt á því að enginn hafi kvartað yfir fréttaflutningnum.
„Það var eiginlega bilað að lögfræðingur Mannlífs reyndi að halda því fram að fólk hefði almennt ekkert verið að kvarta yfir því að Mannlíf væri að ritstela og afskræma minningargreinar þeirra, einfaldlega vegna þess að fólk hefði ekki haft samband við Mannlíf og kvartað við þau beint,“ segir Atli.
„Þegar það má leiða að því líkur að fólk hafi einfaldlega ekki þá tilfinningalegu bandvídd sem til þarf til þess að ráðast á einhvern fjölmiðil ofan á það að vera að syrgja aðstandanda.“