Frosti skrifar opið bréf til Heimildarinnar vegna Eddu Falak: „Teljið þið þetta jafnvel engu máli skipta?“

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason, sem heldur úti Harmageddon-þáttunum á hlaðvarpsveitunni Brotkast.is, birti í morgun opið bréf til Heimildarinnar (áður Stundin og Kjarninn) vegna Eddu Falak sem starfar á miðlinum.

Frosti fór mikinn á dögunum þegar hann sakaði Eddu um ýmis ósannindi í viðtölum í gegnum tíðina. Þannig sagði hann Eddu ekki hafa komið hreint og beint fram varðandi fyrri störf sín. Hún hafi ekki unnið í verðbréfamiðlun hjá virtum banka eða hjá lyfjarisanum Novo Nordisk.

Sjá einnig: Frosti Loga­son segir full­yrðingar Eddu Falaks ekki standast skoðun: „Ég man ekki eftir öðru eins“

Vill afstöðu Heimildarinnar

Þetta veki spurningar því Edda hafi einmitt fyrst vakið athygli þegar hún steig fram sem þolandi kynbundins áreitis þegar hún lifði og hrærðist í viðskiptalífi Kaupmannahafnar fyrir nokkrum árum.

„Ég er búinn hringja sím­tölin og ég er búinn að senda póstana og ég er búinn að vera stans­laust að skoða þetta í nokkrar vikur. Ég er búinn að vera í sam­skiptum við danska fjár­mála­eftir­litið,“ sagði Frosti í þættinum í síðustu viku.

Frosti og Edda hafa eldað grátt silfur saman lengi en fyrr­verandi kærasta Frosta, Edda Péturs­dóttir, kom fram í viðtali við hlað­varpið Eigin konur, sem Edda Falak sá um, og bar Frosta þungum sökum.

Frosti birti opið bréf til Heimildarinnar á Facebook-síðu sinni í morgun þar sem hann kallar eftir afstöðu fjölmiðilsins til þess að blaðamaður miðilsins hafi farið á svig við sannleikann í viðtölum um eigin reynslu.

„Í síðasta mánuði tilkynntuð þið á Heimildinni með formlegum hætti að hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak hefði hafið störf á ykkar miðli þar sem hún mun gegna því mikilvæga hlutverki að fjalla um margvíslegar birtingarmyndir ofbeldis og áhrif þess á þolendur og samfélagið allt,“ segir Frosti í byrjun bréfsins.

Hann fer svo yfir það sem Edda hefur sagt í viðtölum hennar og baráttu hennar gegn kynbundnu áreiti eða ofbeldi, meðal annars með átakinu „Ég trúi“.

„Staðreyndin er einfaldlega sú að Edda Falak hefur aldrei starfað hjá stórum virtum banka, fjárfestingarbanka eða í fjármáladeild risa lyfjafyrirtækis. Það þýðir með öðrum orðum að hún varð aldrei fyrir því kynbundna áreiti sem hún hefur greint frá af fyrrnefndum vinnustöðum. Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir „Ég trúi-átakið“? Hverju eigum við að trúa? Þetta hljóta að vera áleitnar spurningar sem margir velta fyrir sér,“ segir Frosti sem spyr hvort ekki sé vert að ábyrgðarmenn Heimildarinnar greini almenningi frá því hver afstaða fréttamiðilsins er til málsins.

„Teljið þið þetta jafnvel engu máli skipta?“

„Þegar þú lýgur að blaðamanni ertu að ljúga að allri þjóðinni og um leið að vega að trúverðugleika allra fjölmiðla. Það að félagi í Blaðamannafélagi Íslands geri sig sekan um slíkt eykur mjög á alvarleika slíks brots. Er það síðan trúverðugt að blaðamaður sem staðinn hefur verið að þessum ósannindum sé að fjalla um málaflokk þennan með þeim hætti sem hún gerir? Telur Heimildin það rétt að manneskja sem sagt hefur ósatt um kynbundið áreiti í öllum stærstu fjölmiðlum landsins gegni þessu hlutverki á fréttamiðli sem vill láta taka sig alvarlega? Eða teljið þið þetta jafnvel engu máli skipta? Sjálfur tel ég að lesendur ykkar og aðrir eigi rétt á svörum við þessum spurningum,“ segir Frosti.

Bréf hans má lesa í heild sinni hér að neðan.