Harmageddon-bræðurnir þeir Frosti Logason og Máni Pétursson eru ekki að fara að gefa kost á sér í sveitarstjórnarkosningunum í vor, þetta tilkynntu þeir hlustendum sínum í nýjasta hlaðvarpsþættinum sínum.
Fréttablaðið orðaði Frosta við Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Frosti svaraði því:
„Nú tilkynni ég hlustendum Harmageddon og áskrifendum okkar að þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur. Skuldbinding mín er fyrst og fremst við áskrifendur Harmageddon sem hafa ákveðið að koma með okkur í þessa vegferð,“ sagði hann.
„Vangaveltur Fréttablaðsins um framboð Frosta Logasonar eru ekki á rökum reist.“
Máni ætlar heldur ekki í framboð:
„Ég ætla ekki að tilkynna það að ég ætla ekki í framboð til að verða bæjarstjóri í Garðabænum. Fyrst þú ert svona skýr með þetta.“
Máni ætlar þó að halda áfram að „pönkast á íhaldinu“ en þó á öðrum vettvangi.