Frosti Logason fjölmiðlamaður segist ekki hika við að fara á móti straumnum jafnvel þó að hann fái mikinn skít fyrir það. Frosti er gestur í podcastþætti Sölva Tryggvasonar þar sem farið er um víðan völl.
Frosti hefur vakið athygli fyrir góð innslög í Íslandi í dag en mörg undanfarin ár hefur hann verið einn mest áberandi útvarpsmaður landsins. Hafa hann og Þorkell Máni Pétursson stýrt þættinum Harmageddon á X-inu við góðan orðstýr mörg undanfarin ár.
Frosti hefur ekki hikað við að taka viðtöl þá sem eru með óvinsælar skoðanir. Hann segist sjálfur sjá mikla breytingu á samfélaginu á síðustu árum, þar sem einstaklingar með óvinsælar skoðanir eru beinlínis úthrópaður og reynt að þagga niður í þeim.
Frosti er með sterkar skoðanir á þessu og segir það ekki hlutverk fjölmiðla að stoppa ákveðnar skoðanir:
„Eitt af því mest óþolandi sem ég heyri er þegar fólk segir: „Hvað eruð þið að gefa þessum aðila „platform“, þetta er bara einhver brjálæðingur.” Auðvitað tekur maður ekki viðtöl við fólk sem er veikt á geði eða eitthvað slíkt, en það er óþolandi þegar fólk með óvinsælar skoðanir er úthrópað á þann hátt að það sé ekki nógu merkilegt til að vera í fjölmiðlum og fjölmiðlar eigi að passa að það komist ekki að,“ segir Frosti meðal annars.
Hann er þeirrar skoðunar að þetta sé fáránlegur misskilningur á eðli fjölmiðla.
„Ég hika ekki við að fara á móti þessum straumi þó að maður fái mikinn skít fyrir það. Ég hef áhuga á fólki, hugmyndum og samfélaginu og okkur í Harmageddon finnst ekkert vera óviðkomandi hlustendum okkar. Sérstaklega þegar það eru einhverjar skrýtnar og öðruvísi skoðanir. Samfélagið er svolítið brennt af því að umræðan er mjög einsleit og inni í boxi. Ef þú ert ekki sammála háværum hópi af réttlætisriddurum, þá ertu bara gerður útlægur. Þetta er óþolandi ástand.”