Sjónvarpsmaðurinn Frosti Logason er kominn í leyfi frá störfum hjá Sýn. Þetta staðfestir Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri við mbl.is.
Frosti óskaði sjálfur eftir því að fara í ótímabundið leyfi, að sögn Þórhalls. Fyrrverandi kærasta Frosta, Edda Pétursdóttir, sakaði hann um andlegt ofbeldi með því að hóta henni birtingu nektarmynda af henni.
Þórhallur segir við mbl.is að mál Frosta sé til skoðunar. Hann segist ekki geta sagt til um það hvort Frosta verði síðar sagt upp.
Frosti gekkst við ásökunum Eddu í tilkynningu í gærkvöldi. Sagðist hann taka fulla ábyrgð á hegðun sinni og sagðist hann ekki rengja hennar upplifun.