Óhætt er að segja að sú ákvörðun Frosta Logasonar fjölmiðlamanns að snúa aftur með þátt sinn Harmageddon á nýrri efnisveitu, brotkast.is, hafi fallið misvel í kramið hjá sumum. DV fjallaði meðal annars um þetta í gærkvöldi.
Efnisveitan er í eigu Frosta og eiginkonu hans, Helgu Gabríelu Sigurðardóttur.
Gerast þarf áskrifandi til að hlusta á þættina sem í boði eru en þó er hægt að nálgast brot úr fyrstu tveimur þáttum Frosta á vefsíðu Brotkasts. Í öðru þeirra ræðir Frosti meðal annars um fyrirlesarann og knattspyrnumanninn fyrrverandi Bergsvein Ólafsson sem vakið hefur töluverða athygli að undanförnu.
Í myndbrotinu segir Frosti að einkaþjálfarinn Ólöf Tara og aðgerðahópurinn Öfgar séu að leita að ofbeldissögum af Bergsveini. „Þið getið treyst því að akkúrat núna þá er Ólöf Tara og liðið þarna í Öfgum, þær eru sko að leita núna. Þær eru að senda pósta á „random“ fólk úti í bæ: „Átt þú ofbeldissögur af Begga Ólafs? Við verðum að finna ofbeldissögur af Begga Ólafs.“ Og ef þær finna þær ekki, þá geta þær bara búið þær til því það er nákvæmlega það sem þær hafa verið að gera.“
Fjörugar umræður hafa farið fram á Twitter, meðal annars um þennan punkt sem Frosti varpar fram í þættinum. Ólöf Tara sjálf tjáir sig meðal annars um málið á þræði Tönju Ísfjörð og segir:
„Byrjar fyrsta þáttinn á ærumeiðingum. Karlar gonna be karlar. Alltaf að ljúga.“
Fróði minn.. get over yourself. pic.twitter.com/dTHxGTgIVZ
— Tanja Ísfjörð (@tanjaisfjord) January 23, 2023