Frosti fékk nóg þegar hann horfði á fréttirnar í gær­kvöldi: „Hver ber á­byrgð á þessu?“

„Eru ein­hverjir aðrir en ég löngu búnir að fá upp í kok af sí­felldum sýningum frétta­stofu RÚV á sýna­tökum, þar sem sýna­tökupinnum er stungið langt upp í nef­kok?“

Þetta sagði Frosti Sigur­jóns­son, fyrr­verandi þing­maður Fram­sóknar­flokksins, á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi. Þar gagn­rýndi hann RÚV fyrir að sýna í­trekað frá sýna­tökum og bólu­setningum í tengslum við CO­VID-19.

„Í sjón­varps­fréttum RÚV í kvöld voru sýnd minnst fjögur mynd­skeið af bólu­setningum. Í þeim var sýnt mjög ítar­lega hvernig nálum var stungið á bóla­kaf í upp­hand­legg fólks. Hefði eitt slíkt mynd­skeið kannski dugað með þessari frétt,“ spurði Frosti sem spurði hvort fleiri væru búnir „að fá upp í kok“ af endur­sýningum þar sem pinnum er stungið í nef­kokið á fólki.

„Hver ber á­byrgð á þessu?,“ spurði hann.

Margir taka undir með Frosta á meðan öðrum þykir hann full nei­kvæður. „Nú er vælu­bíllinn að bræða úr sér, er ekkert annað að grenja yfir?,“ spurði einn.

Frosti var nokkuð á­berandi í um­ræðunni í tengslum við CO­VID-19 þegar fyrsta bylgja far­aldursins gekk yfir. Gagn­rýndi hann meðal annars Þór­ólf Guðna­son sótt­varna­lækni fyrir við­brögð hans við far­aldrinum. Heldur minna hefur farið fyrir Frosta að undan­förnu.