Tveir franskir ferðamenn, sem fylgdu ekki sóttvarnaráðstöfunum til hins ítrasta, voru þrátt fyrir það ekki sektaðir. Umræddir ferðamenn hafa verið nefndir í tengslum við mikla útbreiðslu smita hér á landi að undanförnu.
Í svari ríkislögreglustjóra við fyrirspurn RÚV kemur fram að ferðamennirnir hafi dvalið í eigin húsnæði meðan á stuttri dvöl þeirra hér á landi stóð. Lögreglan hafði afskipti af þeim þar sem þeir fylgdu ekki sóttvarnarráðstöfunum til hins ítrasta en hins vegar þótti ekki ástæða til að sekta þá.
Raðgreining á mörgum þeirra tilfella sem hafa komið upp hér á landi leiddi í ljós að um sama afbrigði er að ræða og greindist hjá umræddum ferðamönnum.
Mál ferðamannanna hefur vakið talsverða athygli og kallaði Egill Helgason fjölmiðlamaður meðal annars eftir því að þeir yrðu nafn- og myndbirtir í fjölmiðlum.
„Manni sýnist að sektirnar sem vofa yfir þessum frönsku ferðamönnum séu hlægilegar. En það er sjálfsagt að birta nöfn þeirra og myndir af þeim – þetta eru menn sem hafa gerst sekir um mjög alvarleg brot,“ sagði Egill eins og Hringbraut greindi frá í gær.