„Það er allt reynt. Allt,“ segir Frímann Gunnarsson, sem leikinn er af Gunnari Hanssyni. Óhætt er að segja að Frímann sé ekki allra en á sunnudögum eru nú sýndir þættirnir Smáborgarasýn Frímanns á RÚV.
Um er að ræða grínþætti þar sem heimsborgarinn Frímann rannsakar hvort einhverja menningu sé yfir höfuð að finna í dreifbýli landsins.
Færsla Grindvíkingsins Björns Birgissonar frá því á laugardagskvöld hefur fengið talsverða dreifingu á samfélagsmiðlum. Um er að ræða opið bréf til þeirra sem ráða dagskránni í sjónvarpi RÚV og þeir hvattir til að taka Frímann af dagskrá.
„Sem almennur borgari í landinu, borgari sem vill forðast almenn leiðindi í sjónvarpi allra landsmanna, fer ég þess á leit að „heimsborgarinn“ Frímann Gunnarsson verði ekki fenginn til frekari þáttagerðar fyrir RÚV á kostnað almennings. Maðurinn (týpan) er svo niðurdrepandi tilgerðarlegur og leiðinlegur að maður forðast nærveru við sjónvarpið þá daga sem þættirnir hans eru auglýstir, til þess að þurfa örugglega ekki að lenda í því að sjá honum bregða fyrir.“
Rúmlega 250 manns hafa deilt þessari áskorun en í athugasemdum má sjá að skiptar skoðanir eru um Frímann. Sumum finnst hann þrælskemmtilegur á meðan aðrir hreinlega þola hann ekki. Frímann tjáir sig sjálfur á eigin Facebook-síðu þar sem hann segir:
„Það er allt reynt. Allt. En svona fyrir utan vægðarlausa atlögu að persónu minni þá er ég þó sammála Birni um almenna eyðslu skattfés í „Ríkissjónskekkjuna“, enda aldarið á móti sköttum yfir höfuð.. og afnám þeirra myndi strax leysa vandamál eins og RÚV og fjölmörg önnur. Hashtag.“
Hvað segja lesendur, er Frímann skemmtilegur eða leiðinlegur?
Það er allt reynt. Allt. En svona fyrir utan vægðarlausa atlögu að persónu minni þá er ég þó sammála Birni um almenna...
Posted by Frímann Gunnarsson on Þriðjudagur, 25. ágúst 2020