Frigus ehf. hefur áfrýjað til Landsréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 17. mars sl. í máli félagsins gegn Lindarhvoli ehf. og íslenska ríkinu.
Lindarhvolsmálið snýst að verulegu leyti um störf Steinars Þórs Guðgeirssonar, lögmanns, sem stjórn Lindarhvols fól að sjá um allan daglegan rekstur Lindarhvols og selja eignir félagsins, en eignirnar afhentu slitabú föllnu bankanna ríkinu sem stöðugleikaframlag. Steinar Þór var jafnframt lögmaður ríkisins og Lindarhvols í ofangreindu dómsmáli jafnvel þótt hann væri lykilvitni í málinu. Þurfti hann að bera vitni áður en almennar vitnaleiðslur hófust af þeim sökum.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögmanni er ekki vitað um fordæmi fyrir því að lögmaður ríkisins í dómsmáli hafi verið kallaður fyrir sem vitni í sama máli.
Forsvarsmenn Frigusar telja að alvarlegir annmarkar hafi verið á söluferli Lindarhvols ehf. á hlutafé og nauðasamningskröfu í Klakka ehf. í október 2016. Þetta hafi komið berlega í ljós við aðalmeðferð málsins í héraðsdómi þegar skýrslutökur fóru fram.
„Forsvarsmönnum Frigusar þykir miður að héraðsdómur hafi ekki tekið tillit til sjónarmiða og röksemda félagsins er að þessu lúta. Að mati Frigusar er nauðsynlegt að Landsréttur leysi úr málinu, meðal annars í ljósi mikilvægis þess og fordæmisgildis enda liggur fyrir að stjórn og ráðgjafar Lindarhvols ehf. höfðu með höndum sölu á afar verðmætum ríkiseignum,“ segir í tilkynningu frá Frigusi.
„Þá gætir enn undarlegrar tregðu hjá forseta Alþingis, stjórnvöldum þ.m.t. ríkisendurskoðanda við að afhenda greinargerð Sigurðar Þórðarsonar, setts ríkisendurskoðanda, um starfsemi Lindarhvols ehf. Þar kunna að vera upplýsingar sem styrktu málstað Frigusar ehf. fyrir dómi. Vegna alls þessa telja forsvarsmenn félagsins óhjákvæmilegt annað en að fá úrlausn æðra dómsvalds í málinu,“ segir enn fremur í tilkynningunni.