Friðrik Þór Halldórsson, birti í gærkvöldi myndagátu inn í facebook samfélag Chertrúarsafnaðarins og fékk vægast sagt jákvæð viðbrögð en hátt í 600 manns hafa sett like á færsluna þegar þetta er skrifað.
Chertrúarsöfnuðurinn er samfélag 19 þúsund Íslendinga og cherhæfir söfnuðurinn sig í því að gera orðagrín úr nafni söngdrottningarinnar Cher. Friðrik birti myndagátu undir yfirskriftinni „þetta má“ og leyfði meðlimum safnaðarins að giska á svarið.
Ekki voru allir sem náðu orðagríninu hans Friðriks er einhverjir deildu um hvað fyrist hluturinn á myndinni væri.
Þá er spurningin hvort lesendur geta séð hvað stendur á myndinni?
Ljósmynd/skjáskot