Frið­rik segir frá stærstu ógninni tengt veirunni: „Ég skal segja það upp­hátt“

Frið­rik Jóns­son, for­maður BHM, á­kvað að benda á stærstu ógnina í far­aldrinum tengt veirunni utan veirunnar sjálfrar.

„Stærsta ógnin tengt þessari veiru, utan veirunnar sjálfrar, er full­orðið fólk sem vegna leti, sér­visku eða sam­særis­kenninga lætur ekki bólu­setja sig,“ skrifar Frið­rik.

„Þau eru stærsta ógnin við heil­brigðis­kerfið. Þau eru stærsta ógnin við ör­þreytt heil­brigðis­starfs­fólk. Þau eru stærsta ógnin við fólk sem getur ekki af heilsu­fars­á­stæðum þegið bólu­setningu. Þau eru stærsta ógnin við lýð­heilsu, geð­heilsu og efna­hag.“

„Þau eru stærsta ógnin við skóla­kerfið, og svo mætti lengi telja. Skyldu­bólu­setning er ekki æski­leg, en af­leiðinga­leysi á­byrgðar­leysis er heldur ekki á­sættan­legt,“ bætir hann við.

Hann segir að það sé löngu ljóst að veiran fer í mann­greinar­á­lit – verst þeim sem standa veik fyrir vegna aldurs eða undir­liggjandi á­stæðna og þeim sem eru bólu­settir.

„Já­kvæðir hvatar til bólu­setninga eru æski­legastir, en nei­kvæðir hvatar eiga ekki að vera úti­lokaðir. Rétt að reyna mildina þar fyrst. Hins vegar er ekki lengur verjandi að láta allt jafnt yfir alla ganga, bólu­setta sem óbólu­setta“