Friðrik Jónsson, formaður Bandalags Háskólamanna, hefur gagnrýnt Sólveig Önnur Jónsdóttir formann Eflingar fyrir að hafa rekið allt starfsfólk sitt í hópuppsögn.
Hann bendir Sólveigu á gamla frétt af vefsíðu Eflingar þar sem hópuppsögnum á hótelum Árna Vals Sólonssonar var harðlega mótmælt ef félaginu en þar segir um hópuppsögnina: „Þetta er að okkar mati fullkomlega siðlaust athæfi,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar. „Við erum nýbúin að undirrita kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins, sem fyrirtæki Árna eru aðilar að. Þeir samningar byggja á því að hækka laun og bæta kjör fólks. Blekið er ekki þornað á samningnum þegar hann reynir svo að svíkja starfsfólk sitt um þær kjarabætur. Þar að auki er ákvæðum laga um hópuppsagnir ekki fylgt.“
Léttvægar ástæður til hópsuppsagna munu nú eiga greiða leið og erfiðara verður fyrir verkalýðshreyfinguna að spyrna á móti.
— Friðrik Jónsson, formaður BHM (@FormadurBHM) April 13, 2022
Hin Trumpísku viðbrögð við gagnrýni á þetta sjálfsmark eru svo sér kapítuli.